Smá plokk á ströndinni getur gert gæfumuninn, þó það sé bara rétt í kringum staðinn sem flatmagað er á. Maður fær fína hreyfingu út úr því og upplagt tækifæri til að skilja við staðinn í betra ástandi en maður kom að honum. Fiskarnir í sjónum verða líka mjög þakklátir 😉
Í okkar plokki voru plastumbúðir og sígarettustubbar mest áberandi. ,,Við hefðum tekið myndir en höfðum engan kubb … !” …. eða það var meira þannig að rafhlaðan á símanum tæmdist… 🤪